Elsku Guð, nú gengur sól glöð til hvílu sinnar. Legg ég mig í líknarskjól ljúfu handar þinnar.

Þakka vil ég þér sem best þína vernd og gæði: allt það sem ég elska mest, ást og leik og kvæði.

Gættu mömmu, Guð minn kær, gættu pabba, bróður, þú sem öllum ert svo nær, ávallt ljúfur, góður.

Sofna ég nú sætt og rótt, sendu mér og öllum ljúfan draum í dimmri nótt, dag sem rís á fjöllum.

Amen.

Friður Krists sé með þér.

Skoða fleiri texta